26.6.2007 | 15:45
Berglind
Eitthvað eru þeir sofandi á mbl.is í dag. Ég átti von á að sjá hérna frétt um hana Berglindi dóttur mín en það bólar ekkert á henni, svo ég skrifa hana bara sjálfur.
Í dag eru nefnilega 21 ár síðan hún kom í heiminn. Lítil og hálf ræfilsleg og blesótt í ofanálag. Ekki man ég hvað hún var þung, enda er notuð einhver mælieining sem ekki er notuð á Íslandi nema við þetta tækifæri og finnst mér það algjör sóun á leggja það á minnið. En hvað um það.
Það er með ólíkindum hvað þetta hefur liðið hratt, þetta 21na ár og Skotta, eins og hún hefur verið kölluð í langan tíma, hefur breyst úr þessari litlu ræfilslegu hnátu í myndarlega stúlku, sem hann Halli eyrbekkingur var svo heppinn að næla í.
Það er margt skemmtilegt og eftirminnilegt sem kemur upp i hugan á manni við svona tækifæri og einar af eftirminnilegustu stundunum sem við áttum saman, þegar hún var yngri, var þegar ég las fyrir hana fyrir svefninn. Uppáhaldssagan hennar var ævintýrið um Þyrnirós og þó að hún væri ekki búin að læra að lesa þá kunni hún söguna utanað og ef ég dottaði við lesturinn eða ruglaðist eitthvað þá leiðrétti hún mig alltaf og jafnvel ef ég notaði ekki rétta rödd fyrir persónurnar þá var hún fljót að leiðrétta mig. Þetta eru ógelymanlegar stundir og ég hvet alla foreldra að lesa fyrir grislingana sína.
Þannig var nú það. Hafðu það sem allra best í dag Berglind mín og í framtíðinni.
ÞAF
25.6.2007 | 15:55
Bling
Jæja þá hafa hempu klæddu labbakútarnir í Vatikaninu algjörlega spilað út. Vilja meina að það sé synda að eiga eitthvað sem vekur öfund hjá náunganum. Hafa þeir ekkert þarfara að gera, t.d. að hýða þessa presta sem eru að eltast við litlu strákana?
Annars ætti páfinn ekki að vera að skamma aðra fyrir það að eiga eitthvað sem vekur öfund. Ég veit ekki betur en að allir meðlimir í alheimssamtökum hatta safnara gráti sig í svefn á hverju kvöldi af því að þeir eiga ekki eins flottan hatt og páfinn og ekki er það höfuðfat nein hrákasmíði og kostar víst skilding, jafnvel meira en ein Ferrari tík. Meira segja ég öfunda hann af hattinum og mér finnst synd að ég geti ekki keypt mér alveg eins trúða hatt.
Hérna var bara skýjað í dag.
![]() |
Synd að kaupa Ferrari? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
25.6.2007 | 08:40
"Disinjá bandí hikk dnoíng" sem .......
"Disinjá bandí hikk dnoíng" sem útleggst einhvern veginn á þessa leið " Haldið áfram að ,hikk, bora strákar" Já ekki veitir af því að fylla liðið þarna í göngunum. Þeir verða bara að muna eftir því að setja lok á fötuna með kampavíninu, svo þeir fái ekki skitu eins og um daginn. Svo flytur Geiri á Goldfinger bara staðinn upp eftir( að vísu eru ekki súlur en nóg af kampavíni í fötum) og þar geta glyðrunar hans skemmt veggja sleikjandi borköllum allan sólarhringinn, því í göngunum er alltaf nótt, og þá er ég að tala um göngin sem er verið að bora út. BAra svo það sé á hreinu. Skál fyrir því þið þarna borkallar.
Hérna ringdi aðeins í morgun.
![]() |
Heimsmet í gangaborun? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
24.6.2007 | 08:36
Nótt hinna löngu hnífa og líklega barefla líka.
Ég er að hugsa um að vera bara áfram hérna í Afghanistan. Líklega er ég öruggari hérna heldur en á Íslandi þar sem allt morar í klikkausum sem halda að þeir hafið fæðst fullgildir kappakstursmenn, nú eða þá snarvitlausir apakettir sem bregða kuta við minnsta tækifæri og stinga mann og annan og rota, að ekki sé talað um sjálfskipaða fiskisálfræðinga sem gráta úr sér augun ef einhver sægreifinn leggur upp laupana útaf OFUR STERKRI KRÓNU.
Sól sól sól sól og 40°c hiti.
![]() |
Einn höfuðkúpubrotinn og annar stunginn í bakið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
24.6.2007 | 08:17
Jebb, svona fór um rúntinn þann
Ekki er þetta neinn skemmti lestur, þessi frétt, en það virðist vera að bærinn sé fullur af klikkahausum sem er tilbúinn að taka þennan slag sem hraðakstur er og það í þéttbýli. Í ofanálag þá þurfa þessir klikkausar helst að vera með félaga sína og vini í bílnum sem gerir þetta ennþá verra.
Núna finnst mér vera kominn tími á næsta skerf í umferðaslysakláminu. Það er að fá þessa klikkausa til að koma fram opinberlega og segja sína sögu, og þá meina ég strax við fyrsta tækifæri, með fullri virðingu fyrir þeim sem hafa talað um sín slys(ef þeir eru þá þess umkomnir að geta talað) Það er allt í lagi þó að þeir þurfi að liggja flatir á meðan viðtalið er tekið. Bara að það sé hægt að fá þeirra hlið á málinu og kanski hreyfir það við einhverjum af þeim klikkhausum sem hingað til hafa sloppið við það að keyra sig og aðra í klessu.
Að lokum óska ég þessum krökkum bata og vonandi geta þau gengið óstudd út af spítalanum sem allra fyrst.
Sólskins kveðjur frá sólskins landinu Afghanistan.
![]() |
Þungt haldin eftir umferðarslys |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Enski boltinn | Breytt s.d. kl. 08:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.6.2007 | 17:16
Hvalræði annar hluti. Moby Dick snýr aftur.
Í maga skepnunnar fannst meðal annars: Eitt par af Nokia gúmmístígvélum nr. 43, önnur útgáfan af Trivial pursuit ásamt öllum spurninga spjöldunum. Einnig fannst, 213 ára gamall skutulsoddur, í vinstra bægslinu. En það bendir til að skepnan hafi að minnsta kosti verið 213 ára gömul.
Sól og blíða á ströndinni.
![]() |
Búrhval rak á land við Stokkseyri |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
17.6.2007 | 18:24
Já hátíðarræða var það heillin
Það er þrennt í stöðunni. 1. Maðurinn er vangefinn. 2. Hann var að vakna úr dái. 3. Hann lærði að tala í morgun. Þvílíkur labbakútur sem þessi maður er. Var hann ekki samgöngumálaráðherra? Svo fær hann skófar á bossan og þá allt í einu er þetta kerfi sem hann hefur stutt(ég veit ekki hvað lengi) gallað. Þessi maður hefur alltaf minnt mig á gufu og ekki batnaði það við þetta.
Núna verður mér líklega hent af blogginu fyrir þetta svo ég kveð alla svona til öryggis.
Sól og blíða hérna á ströndinni.
![]() |
Sturla: Kvótakerfið hefur mistekist |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Enski boltinn | Breytt s.d. kl. 18:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.6.2007 | 16:38
Amen
Gunnar: "Sæktu svo fyrir mig messuvínið, Eyji minn, hjólið er frammi í skrúðhúsinu"
![]() |
Eyþór Arnalds nýr meðhjálpari |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
15.6.2007 | 14:45
Syndaaflausn.............................................
Einu sinni seldi kirkjan flísar til fáfróðra og með kaupunum átti viðkomandi að sleppa við vist í helvíti eftir dvölina á jörðinni. Núna bjóða flugfélögin og aðrar stofnanir og fyrirtæki upp á nýtísku syndaaflausn og hún felst í þessu bulli sem er KOLEFNISJÖFNUN. Svo eru til millar sem slá um sig og þeysast heimshorna( á kúlulaga hnetti) á milli, á einkaþotum sínum og tilkynna hróðugir að þeir kolefnisjafna sín ferðalög. Þetta er einhver alvitlausasta bóla sem hefur komið upp síðustu ár. Hún er í rauninni arfavitlaus. Hver ætlar að fylgjast með því að þessi peningur fari í það að kaupa plöntur og hver ætlar að fylgjast með því að sá sem kaupir þær reyni ekki að finna það allra ódýrasta og smeygja síðan einhverju lítilræði undan. Ef fólk fær eitthvað samviskubit yfir því að ferðast með flugvélum þá á það bara að fara í bló..... eða gar..... og kaupa sér hríslur og stinga þeim niður og öðlast þar með vist á himnum.
Allavega þá er þetta mín skoðun og getur alveg verið arfavitlaus.
Sól og blíða
![]() |
Iceland Express býður farþegum að kolefnisjafna ferðir sínar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
13.6.2007 | 13:46
Sviði sviði svita
EKKI taka mark á þessari frétt. Hún er bara eins og hvert annað bull og ALLS EKKI taka mark á því sem sagt er um það að grilla ekki feit kjöt. Því ef þið farið eftir því þá er alveg eins gott að naga bara venjulegt kústskaft.
kveðja
![]() |
Grillarar lifa hættulegu lífi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |